Steingervingar risaeðla hafa fundist á Ítalíu síðustu áratugi en nú hafa steingervingafræðingar fundið leifar 11 risaeðla í Villaggio del Pescatore sem er gömul kalknáma nærri Trieste.
Steingervingarnir eru af risaeðlum af tegundinni Tethyshadros insularis sem var uppi fyrir um 80 milljónum ára. Risaeðlur af þessari tegund urðu allt að fimm metrar á lengd. The Guardian skýrir frá þessu.
„Ítalí er ekki þekkt fyrir risaeðlur þrátt fyrir að við höfum verið heppin áður en nú höfum við heila hjörð á einum stað,“ sagði Federico Fanti, prófessor við háskólann í Bologna og stjórnandi rannsóknarinnar. Niðurstöður hennar hafa verið birtar í Scientific Reports Journal.
Villagio del Pescatore varð fyrst frægt fyrir risaeðlur 1996 þegar beinagrind fannst þar. Hún var kölluð Antonio og var í fyrstu talið að hún væri af „dvergtegund“. En nýja uppgötvunin hefur orðið til þess að nú telja vísindamenn að Antonio hafi verið ungt dýr úr hjörðinni.
Í námunni hafa einnig fundist steingervingar fiska, krókódíla, fljúgandi skriðdýra og lítilla rækja en fyrir 80 milljónum ára var náman hluti af hinu forna Miðjarðarhafssvæði.