Denver Post skýrir frá þessu. Fram kemur að talið sé að byssumaðurinn hafi skotið fjóra til bana og sært að minnsta kosti þrjá, þar á meðal lögreglumann. Hann þurfti að gangast undir aðgerð í nótt að sögn talsmanns lögreglunnar.
Paul Pazen, lögreglustjóri í Denver, sagði á fréttamannafundi í nótt að um „morðæði“ hafi verið að ræða. Hann sagði að ekki sé talið að fleiri en sá sem lögreglan skaut til bana hafi verið að verki.
Atburðarásin hófst í Denver um klukkan 17 að staðartíma. Þá skaut maðurinn tvær konur til bana og særði karlmann nærri gatnamótum East First Avenue og Broadway. Skömmu síðar skaut hann mann til bana við East 12th Avenue og Williams Street. Hann hleypti síðan af skotum á gatnamótum nærri stærsta sjúkrahúsi borgarinnar. Hann virðist ekki hafa hæft neinn þar. Lögreglumenn komu auga á bíl byssumannsins eftir þetta og reyndu að stöðva akstur hans en byssumaðurinn skaut á þá og gerði lögreglubílinn óökufæran. Hann slapp því á brott og hóf skothríð við Kipling Street og varð einum að bana þar.
Lögreglumenn komu síðan auga á bifreið hans og skiptust á skotum við hann. Hann komst undan á hlaupum og fór inn í tvær verslanir þar sem hann skaut einn afgreiðslumann, ekki er vitað um alvarleika áverka hans. Eftir það varð lögreglumaður frá Lakewood á vegi byssumannsins og skaut hann lögreglumanninn. Að lokum skutu lögreglumenn manninn síðan til bana. Ekki er vitað hvað varð til þess að morðæði greip manninn.