fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Pressan

Þessi blanda veitir ofurvörn gegn kórónuveirunni segir sérfræðingur

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 27. desember 2021 06:07

Kórónuveira. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Viksmoen Watle, yfirlæknir hjá norska landlæknisembættinu, segir að þeir sem hafa smitast af kórónuveirunni, áður eða eftir að þeir fengu tvo skammta af bóluefni gegn henni, séu hugsanlega betur varðir gegn nýjum afbrigðum veirunnar en þeir sem hafa fengið þrjá skammta af bóluefni en hafa ekki smitast.

VG skýrir frá þessu en miðillinn ræddi við Watle. Fram kemur að sérfræðingar kalli þetta „blendingsónæmi“ eða „ofurónæmi“. „Með ofurónæmi færð þú bæði breiða vörn vegna fyrra smits og verndarinnar frá bóluefninu,“ sagði Watle sem er sérfræðingur í virkni bóluefna.

Hún lagði sérstaka áherslu á að norska landlæknisembættið hvetji fólk alls ekki til að reyna að smitast af kórónuveirunni vegna þess að heilbrigt fólk geti orðið alvarlega veikt af hennar völdum.

Rannsóknir hafa sýnt að besta vörnin gegn veirunni næst þegar ónæmi eftir yfirstaðið smit er styrkt með bóluefni. Færri rannsóknir og gögn hafa sýnt sömu virkni eftir bólusetningu og síðan smit en norska landlæknisembættið reiknar með að allar „blöndur“ séu góðar en þær geta til dæmis verið:

Smit og síðan tveir skammtar af bóluefni.

Sýking, einn skammtur af bóluefni og sýking á nýjan leik.

Tveir skammtar af bóluefni og sýking.

Watle sagði að hugsanlega veiti það aðeins minni vernd ef fólk hefur verið bólusett áður en það smitast en sú blanda veiti samt sem áður breiðari vörn gegn afbrigðum framtíðarinnar en að þrír skammtar af bóluefni.

Ný norsk rannsókn, sem 400 smitaðir tóku þátt í, sýnir að næstum allir voru með mótefni gegn veirunni í blóði sínu ári eftir smit. Það átti einnig við um þá sem höfðu glímt við væg einkenni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn – Erfðir skipta meira máli en það sem þú borðar

Ný rannsókn – Erfðir skipta meira máli en það sem þú borðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hversu oft á að skipta á rúminu?

Hversu oft á að skipta á rúminu?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gera 500 götur í París að göngugötum

Gera 500 götur í París að göngugötum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta þénuðu geimfararnir sem sátu fastir í geimnum í 9 mánuði

Þetta þénuðu geimfararnir sem sátu fastir í geimnum í 9 mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Barnið sagði að það væri skrímsli undir rúminu – Barnapían fékk áfall þegar hún kíkti sjálf

Barnið sagði að það væri skrímsli undir rúminu – Barnapían fékk áfall þegar hún kíkti sjálf
Pressan
Fyrir 4 dögum

Busavígsla fór úr böndunun: „Við viljum ekki tala um það sem gerðist fyrir framan hann“

Busavígsla fór úr böndunun: „Við viljum ekki tala um það sem gerðist fyrir framan hann“