VG og Bild skýra frá þessu. Fram kemur að hjá BioNTech og Pfizer sé verið að bíða eftir niðurstöðum rannsókna og að svör muni berast í síðasta lagi eftir tvær vikur. Haft er eftir talsmanni BioNTech að fyrirtækið skilji vel áhyggjur sérfræðinga af afbrigðinu og því hafi strax verið hafist handa við að rannsaka afbrigðið. Þær rannsóknir muni veita svar við hvort þörf sé á að breyta bóluefni fyrirtækjanna til að laga það að afbrigðinu. Ef svo er þá verður hægt að breyta bóluefninu og afhenda fyrstu skammtana af því innan 100 daga.
Insider segir að hjá Moderna sé unnið að því að búa til nýja útgáfu af bóluefninu og sé hún sniðin að Ómíkronafbrigðinu. Í fréttatilkynningu, sem fyrirtækið sendi frá sér í síðustu viku, kemur fram að fyrirtækið vinni að því að prófa ýmsa möguleika til að geta brugðist við ef afbrigðið reynist ónæmt fyrir bóluefnum.
Allt frá því að afbrigðið uppgötvaðist í Suður-Afríku þann 24. nóvember hefur það vakið miklar áhyggjur víða um heim. Mörg ríki hafa gripið til hertra ráðstafana á landamærum sínum.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO segir að „miklar líkur séu á að afbrigðið dreifi sér enn frekar“ og að það „geti haft alvarlegar afleiðingar á sumum svæðum“.