Allt frá því að Pomaskis hvarf hefur lögreglan unnið að rannsókn á hvarfi hennar en hún er unnusta Kevin Ware, fyrrum leikmanns í bandarísku ruðningsdeildinni.
Nýlega fann lögreglan „líkamsleifar“ sem hún telur að séu af Pomaskis en það hefur þó ekki enn verið staðfest.
Allt frá því um miðjan maí hefur hvarf hennar verið rannsakað sem morðmál því lögreglan telur eitt og annað í tengslum við hvarf hennar benda til þess að hún hafi verið myrt.
Líkamsleifarnar fundust þegar lögreglan gróf á ákveðnum stað í North Harris County að sögn Ed Gonzalez, lögreglustjóra.
Enginn hefur verið kærður eða handtekinn vegna málsins en grunur hefur beinst að Kevin Ware. Hann var handtekinn þann 11. júní vegna annars máls sem snýst um fíkniefni og skotvopn. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan.