En hópur vísindamanna hefur í hyggju að breyta þessu. Þeir ætla að smíða stóran kassa, nokkurs konar svartan kassa svo vísað sé til flugrita, þar sem vísindaleg gögn verða geymd fyrir menningarheima framtíðarinnar. Þeir munu geta fengið innsýn í hvað varð til þess að menning okkar nútímamannanna varð að engu og hvernig það gerðist.
Verkefnið hefur fengið heitið „Earth‘s Black Box“ (Svarti kassi jarðarinnar) en þessi kassi verður úr öflugu stáli og verður komið fyrir á afskekktum stað á Tasmaníu. Hann á að geta staðið allar hamfarir af sér, nema auðvitað ef jörðin eyðist bara í heild sinni.
Það eru vísindamenn við Tasmaníuháskóla, auglýsingastofan Clemenger BBDO og hönnunarstofan The Glue Society sem standa að verkefninu. Verið er að hanna kassann sem á að skrá margvísleg gögn, til dæmis um loftslagið, magn CO2, sjávarhita og orkunotkun mannkyns. Hann mun einnig safna upplýsingum á borð við fyrirsagnir frétta og færslum á samfélagsmiðlum.
Í kassanum verður búnaður tengdur við Internetið en sólarrafhlöður munu sjá honum fyrir rafmagni. „Hann er byggður til að lifa okkur öll af,“ sagði Jonathan Kneebone, einn stofnanda the Glue Society, í samtali við ABC.
Stærsta verkefni hópsins núna er að finna út úr hvernig á að tryggja að menningarheimar framtíðarinnar geti nálgast gögnin í kassanum.