Að minnsta kosti hefur magnað myndband af ísbirni að veiða hreindýr vakið mikla athygli að undanförnu. Upptakan er sú fyrsta sinnar tegundar sem sýnir ísbjörn veiða hreindýr í sjó og draga í land.
Þetta gerðist í ágúst á síðasta ári þegar enginn hafís var við Svalbarða og því neyddist ísbjörninn til að finna sér eitthvað annað en seli til að éta en þeir eru uppistaðan í fæðu þeirra eða um 90% af henni.
Á upptökunni sést ungt kvendýr hrekja hreindýrið út í ískaldan sjóinn þar sem það nær hreindýrinu síðan, drekkir því og dregur í land. Það var hópur pólskra vísindamanna sem tók myndirnar og voru þeir mjög sáttir við að verða vitni að þessum atburði.
Izabela Kulaszewicz, líffræðingur við Gdansk háskóla, var meðal þeirra. Hún sagði i samtali við AFP að þetta hafi verið einstök upplifun.
Hún hefur í samstarfi við fleiri vísindamenn skrifað vísindagrein þar sem rök eru færð fyrir því að þessi atburður og aðrir, sem hafa sést, sanni að ísbirnir séu að læra að veiða hreindýr sér til matar. Á Svalbarða eru um 300 ísbirnir og um 20.000 hreindýr.
Frá 1925 hefur verið bannað að veiða hreindýr á Svalbarða og segja vísindamenn að þeim hafi því fjölgað mikið og það geti verið hluti af skýringunni á af hverju ísbirnir séu farnir að veiða hreindýr.