Um langa hríð höfðu íbúar í bænum varað lögregluna við „manninum á leikvellinum“ en hann hafði margoft reynt að lokka börn með upp í íbúðina sína sem er nærri leikvellinum. En lögreglan tók þessum ábendingum ekki alvarlega og á endanum gerðist það sem mátti alls ekki gerast.
Maðurinn var á leikvellinum þetta kvöld og gaf sig að Álex á þeim stutta tíma sem móðir hans var ekki til staðar. Maðurinn, sem er 54 ára og heitir Francisco Javier Almeida, náði að lokka Álex með sér upp í íbúð sína. Vinir Álex gerðu fullorðnum á svæðinu strax viðvart um að Álex hefði farið með Almeida. Nokkrir fullorðnir, þar á meðal móðir Álex, flýttu sér því heim til Almeida.
Í stigaganginum mætti þeim hryllileg sjón. Fyrir framan íbúð Almeida sat hann með Álex í fanginu. Álex var líflaus. Almeida hafði kyrkt hann skömmu áður. Álex hafði greinilega barist á móti en réði ekki við fullorðinn manninn.
Lögreglan kom fljótlega á vettvang og handtók Almeida. Þá hafði fjöldi fólks safnast á staðinn og gerði hróp og aðsúg að lögreglunni. Fólkið gat einfaldlega ekki fyrirgefið lögreglunni að hafa ekki tekið mark á aðvörunum um að Almeida hefði oft reynt að lokka börn með sér af leikvellinum.
En reiði fólks átti bara eftir að vaxa því næstu daga skýrðu spænskir fjölmiðlar frá hryllilegri fortíð Almeida. Saga hans nær allt aftur til 1989 en þá lokkaði hann 13 ára stúlku með sér heim og batt hann hana við stól. Hann var síðan nærri því búinn að kyrkja hana á meðan hann fróaði sér yfir hana. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir þetta en þegar hann losnaði út sýndi hann á sér enn skelfilegri hlið.
1998 þóttist hann vera að leita að íbúð til kaups og mælti sér mót við fasteignasalann María del Carmen López. En hann hafði ekki í hyggju að kaupa íbúð. Þegar López var að sýna honum íbúð og þau fóru inn í svefherbergið dró hann upp hníf. Hann neyddi López niður í rúmið, skar hana margoft með hnífnum og nauðgaði henni. Að því loknu stakk hann hana í hjartað og lést hún við það.
Í ljósi þessara mála spyrja margir Spánverjar sig nú hvernig geti staðið á því að Almeida gekk laus?
Hann var dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir morðið á López en var látinn laus til reynslu í apríl á síðasta ári en þá hafði hann afplánað 22 ár af dómnum. Á meðan á afplánuninni stóð og í viðtölum, vegna umsóknar hans um reynslulausn, kom hann vel fyrir og því þótti forsvaranlegt að láta hann lausan.
Það skilyrði fylgdi þó reynslulausninni að yfirvöld áttu að fylgjast náið með honum en nú hefur komið fram að það var misbrestur á því. Til dæmis hafði lögreglunni ekki verið tilkynnt að hann væri fluttur til Logrono. Spánverjar ræða því mikið þessa dagana hvernig á að meðhöndla svona hættulegt fólk.