fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Bandaríkin opnast fyrir ferðamönnum í dag eftir 600 daga lokun

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 8. nóvember 2021 08:00

Þessi er tilbúinn með COVID-vegabréfið og hitt vegabréfið. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörg þúsund manns munu leggja leið sína til Bandaríkjanna í dag þegar landið verður opnað fyrir erlendum ferðamönnum á nýjan leik eftir 600 daga lokun vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Bólusett fólk getur nú heimsótt Bandaríkin og óbólusett fólk getur farið þangað næstu vikurnar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Á nýju ári verður hins vegar tekið fyrir komur óbólusetts fólks til landsins. Allir verða sýna neikvæða niðurstöður sýnatöku við komuna til landsins og má hún ekki vera eldri en þriggja daga eða eins dags eftir atvikum.

Það var Donald Trump, fyrrum forseti, sem bannaði komu ferðamanna frá mörgum ríkjum á upphafsstigum heimsfaraldursins.

Sky News segir að flugfélög hafi nú bætt við flugi til Bandaríkjanna til að mæta eftirspurn.

Ferðamenn verða að hafa lokið bólusetningu með bóluefni sem er viðurkennt til neyðarnotkunar af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO eða af bandarísku lyfjastofnuninni FDA. Þessi bóluefni eru: AstraZeneca, BIBP/Sinopharm, Covishield, Janssen, Moderna, Pfizer/BioNTech og Sinovac.

Aðeins þeir sem eru bandaríski ríkisborgarar, hafa fasta búsetu í Bandaríkjunum og börn yngri en 18 ára eru undanþegin bólusetningarkröfunni. Óbólusett fólk verður að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr sýnatöku við komuna til Bandaríkjanna og má hún ekki vera eldri en sólarhrings gömul.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga