Norska ríkisútvarpið skýrir frá þessu. Haft er eftir Benny Østerbye Hansen, yfirlækni í Gloppen, að þetta sé varhugavert. Það sem kom heilbrigðisyfirvöldum á sporði um þessi partí er að smitum hefur fjölgað mjög staðbundið undanfarinn mánuð.
Hansen benti á að partí af þessu tagi geti orðið til þess að svo margir smitist að ekki sé hægt að hafa skóla og leikskóla opna og að ekki verði hægt að tryggja að heilbrigðiskerfið ráði við álagið.
„Smitpartí“ eru ekki ný af nálinni hjá foreldrum leikskólabarna en þau hafa áður verið haldin til að reyna að láta börn smitast af öðrum síður alvarlegri sjúkdómum, til dæmis hlaupabólu. Norska landlæknisembættið hefur áður sagt að það sé í lagi að halda „smitpartí“ fyrir hlaupabólu en að halda slík partí í von um að börn smitist af rauðum hundum eða mislingum feli í sér mikla áhættu.