Skoðanakannanir sýna að 50 til 60% landsmanna hafa ekki í hyggju að láta bólusetja sig. Sjúkrahúsin eru undir miklu álagi vegna fjölda óbólusettra sem smitast af veirunni og verða mjög veikir og þurfa að leggjast inn á sjúkrahús. Ríkisfjölmiðlar skýra sífellt oftar frá því að sjúkrahús séu orðin yfirfull af COVID-19-sjúklingum og á það bæði við um í stóru borgunum og minni borgum og bæjum. Flestir þeirra, sem eru lagðir inn, eru óbólusettir.
Hið alvarlega ástand hefur nú orðið til þess að rússneskir fjölmiðlar fjalla á annan hátt um faraldurinn en fram að þessu. Áður höfðu yfirvöld dregið upp þá mynd að þau hefðu góða stjórn á faraldrinum en nú leggja fjölmiðlar og fleiri mikla áherslu á að staðan sé mjög alvarleg. Almenningi er sagt berum orðum að það sé mjög óábyrgt að láta ekki bólusetja sig og bent er á að besta leiðin til að bjarga mannslífum sé að láta bólusetja sig.
Í rússneskum fjölmiðlum er einnig rætt um hvort rétt sé að reyna að hræða fólk til að láta bólusetja sig eða hvort betra sé að beina áherslunum að kostunum við bóluefnin.
Fjölmiðlar hafa einnig fjallað um efasemdir landsmanna í garð bóluefnanna og upptökur, úr eftirlitsmyndavélum, hafa verið gerðar opinberar en á þeim sést heilbrigðisstarfsfólk taka við mútum gegn því að láta sem það bólusetji fólk. Bóluefninu er sprautað í vaskinn eða fer beint í ruslatunnuna. Þeir sem greiða fyrir þetta fá hins vegar útgefið bólusetningarvottorð sem er skráð í opinberar skrá.
Vladímír Pútín, forseti, segist ekki skilja þessa andstöðu við bóluefnin og hefur margoft hvatt landsmenn til að láta bólusetja sig en hann var sjálfur bólusettur með Sputnik V bóluefninu. En hvatning hans virðist ekki hafa sérstaklega mikil áhrif. „Þetta er undarlegt, þessi andstaða er einnig hjá vel menntuðu fólki. Ég skil ekki hvað er í gangi, við erum með traust og áhrifaríkt bóluefni,“ sagði forsetinn.