Weinstein var áhrifamikill framleiðandi í Hollywood og sagði Wood að með því að láta einn orka líkjast honum hafi átt að senda honum „fokkaðu þér“ skilaboð.
„Hann hafði séð eina af þessum orka grímum. Og ein þessara orka gríma – ég man þetta vel – átti að líkjast Harvey Weinstein, svona einhverskonar fokkaðu þér skilaboð,“ sagði Wood. „Ég held að það sé í lagi að tala um þetta núna. Maðurinn erí fangelsi, til fjandans með hann,“ bætti hann við.
Mál Weinstein var fyrsta stóra málið í kjölfar #MeToo og var hann sakaður um fjölda nauðgana. Hann var dæmdur í 23 ára fangelsi í febrúar 2020 og hefur verið ákærður fyrir fleiri brot í Kaliforníu og á enn lengri dóm yfir höfði sér. Hann neitar sök.
Wood sagði að Peter Jackson, leikstjóri myndanna, hafi ákveðið að láta einn orka líta út eins og Weinstein í kjölfar erfiðra samskipta við hann við gerð myndanna.