Fyrir níu árum byrjuðu vísindamenn að rannsaka Vanguard hellinn, sem er hluti af Gorham‘s hellunum, til að kortleggja raunverulega stærð hans og til að rannsaka hvort þar væru afkimar og hellar sem væru lokaðir með sandi.
Í síðasta mánuði fann teymið gat í jarðlögum. Það var víkkað og vísindamenn gátu skriði í gegn og komust þá inn í afkima þar sem voru bein úr dýrum. Clive Finlayson, þróunarlíffræðingur og forstjóri þjóðminjasafnsins á Gíbraltar, sagði að um töluvert stórt rými sé að ræða og þangað hafi enginn komið í 40.000 ár hið minnsta. Hann sagði að eitthvað dýr hafi dregið hluti og dýr inn í hellinn fyrir löngu. Það sýni för á veggjum. Líklega séu förin efir gaupur.
Hann sagði að einnig séu ummerki um að Neanderdalsmenn hafi verið í hellinum en ýmis verkfæri, sem tengist þeim, hafi fundist þar. Einnig fundu vísindamennirnir mjólkurtönn úr barni af ætt Neanderdalsmanna. Telja þeir að barnið hafi verið drepið af dýri og síðan hafi ættingjar þess komið líki þess fyrir. Þetta geti varpað ljósi á útfararsiði Neanderdalsmanna.