Fox News hefur eftir honum að unnið sé að því að fá lögreglumenn úr öðrum ríkjum til starfa í Flórída.
Í mörgum borgum og ríkjum hafa yfirvöld gert opinberum starfsmönnum að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni eða missa vinnuna að öðrum kosti. Töluverð andstaða er við þessar kröfur meðal lögreglumanna og sjúkraflutningamanna og hafa fjölmiðlar, sem eru á hægri vængnum, verið duglegir að fjalla um slík mál. Einnig hafa stjórnmálamenn, sem eru andvígir aðgerðum yfirvalda vegna heimsfaraldursins, notað þetta til að ráðast á Joe Biden, forseta, og stjórn hans.
DeSantis sagði að þörf væri fyrir fleiri lögreglumenn í ríkinu og hann vonist því til að þing ríkisins samþykki lög sem kveða á um að lögreglumenn, sem ráða sig til starfa í Flórída, fái 5.000 dollara eingreiðslu.
DeSantis nýtur góðs stuðnings meðal Repúblikana þegar kannað er hverja þeir telja góðan kost til að verða forsetaframbjóðandi flokksins í kosningunum 2024. Hann hefur náð þeirri stöðu með því að taka sér stöðu þétt við hlið Donald Trump og sjónarmiða hans.
Eins og aðrir stjórnmálamenn, sem standa í skugga Trump, hefur DeSantis verið andvígur almennum sóttvarnaaðgerðum vegna heimsfaraldursins sem hefur kostað 743.000 manns lífið í Bandaríkjunum. Þar af um 70.000 í Flórída.