Aftonbladet skýrir frá þessu. Fram kemur að hugsanlega hafi leigumorðingi verið að verki og að morðið hafi verið myndað til að sanna að það hefði átt sér stað.
Blaðið segir að rannsókn lögreglunnar miði áfram en enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins. Vitni eru sögð hafa séð tvo dökkklædda menn yfirgefa vettvang eftir að Einár hafði verið skotinn.
Mörg hundruð manns hafa verið yfirheyrðir, tæknirannsóknir hafa farið fram og enn leitar lögreglan að vísbendingum og sönnunargögnum. Aftonbladet segist hafa heimildir fyrir að lögreglan hafi haldlagt farsíma sem var á vettvangi þegar Einár var skotinn. Facetime-forritið er sagt hafa verið í gangi á þeim tímapunkti. Grunar lögregluna að morðinginn, eða morðingjarnir, hafi rætt við einhvern í gegnum Facetime og tekið morðið upp. Talsmaður lögreglunnar vildi ekki tjá sig um þetta.
Blaðið segist hafa heimildir fyrir að Einár hafi fengið alvarlegar líflátshótanir. Hann var ekki félagi í neinum sérstökum glæpasamtökum en er þó talin hafa haft tengsl við Husbys hyenor og Dödspatrullen sem eru glæpasamtök sem hafa komið við sögu í fjölda morðmála.
Fé hafði verið lagt til höfuðs honum og hafði hann reynt að verða sér úti um lífverði og skotheldan bíl að sögn heimildarmanna Aftonbladet.