„Þetta gerist svo hratt. Við verðum að horfast í augu við að tölurnar hækka hraðar og fyrr en reiknað var með,“ sagði Hugo De Jonge, heilbrigðisráðherra Hollands, í vikunni þegar hann tilkynnti að ríkisstjórnin væri að íhuga hvað aðgerða eigi að grípa til. Hollendingar höfðu afnumið flestar sóttvarnaaðgerðir frá 25. september en faraldurinn hefur sótt í sig veðrið síðan. Á síðustu tveimur vikum hefur fjöldi smita tvöfaldast og er nú um 324 á hverja milljón íbúa. 87% landsmanna hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni.
Fjórða bylgja faraldursins ríður nú af miklum krafti yfir Belgíu og á þriðjudaginn var ákveðið að grípa til harðari sóttvarnaaðgerða. Á miðvikudaginn voru 504 smit á hverja milljón íbúa og er það tvöfalt hærri tala en 10 dögum áður. Daglega eru 115 COVID-19-sjúklingar , að meðaltali, lagðir inn á sjúkrahús, helmingi fleiri en vikunni áður. Innlögnum á gjörgæsludeildir hefur einnig fjölgað. Yfirvöld hafa því ákveðið að taka upp grímuskyldu á nýjan leik í verslunum, kvikmyndahúsum, íþróttamiðstöðvum og öðrum byggingum sem almenningur hefur aðgang að. Einnig verður að framvísa kórónupassa á veitingastöðum, næturklúbbum og á menningarviðburðum. Einnig er fólki ráðlagt að vinna að heiman ef þess er nokkur kostur.
Í Austurríki hefur staðan orðið til þess að ríkisstjórnin hefur varað við að gripið verði til sóttvarnaaðgerða og þá sérstaklega fyrir þá sem eru óbólusettir. 65% landsmanna hafa fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni og hefur lítil breyting orðið á þessu hlutfalli síðustu vikur. „Við getum ekki enn horft á faraldurinn í afturspeglinum. Við erum á leið inn í faraldur óbólusettra,“ sagði Alexander Schallenberg, kanslari, um síðustu helgi þegar fjöldi innlagðra á gjörgæsludeildum náði 220. Þegar sú tala verður komin í 500, en það er fjórðungur allra gjörgæslurýma í landinu, verður byrjað að krefjast kórónupassa og þegar talan er komin í 600 hefur ríkisstjórnin í hyggju að grípa til sóttvarnaaðgerða sem ná til óbólusettra. Meðal þeirra aðgerða sem eru sagðar í kortunum er að banna óbólusettu fólki að yfirgefa heimili sín nema mjög sérstakar ástæður séu fyrir því.
Smitum fer einnig fjölgandi í Þýskalandi, Frakklandi og Lúxemborg.
Í Bretlandi hefur innlögnum á sjúkrahús fjölgað stöðugt síðan í maí. Spá greiningarfyrirtækisins Airfinity sýnir að þótt það takist að halda innlögnum á sjúkrahús á sama stigi og nú þá muni heilbrigðiskerfið ekki ráða við ástandið í ársbyrjun 2022. Því veldur blanda af kórónuveirufaraldrinum og væntanlegur inflúensufaraldur.
Núna eru 6.000 til 7.000 COVID-19-sjúklingar lagðir inn á bresk sjúkrahús í viku hverri. Airfinity segir að geta þeirra liggi við 10.500 sjúklinga á viku.