Vegna stöðunnar hefur landsstjórnin, í samráði við farsóttanefndina, ákveðið að grípa til ákveðinna aðgerða. Bárður á Steig Nielsen, lögmaður, sagði í gær að heilbrigðisyfirvöld hafi fylgst náið með stöðu mála frá upphafi faraldursins og nú telji þau þörf á að grípa til aðgerða á nokkrum svæðum þar sem smitin breiðast út.
Flest eru smitin á norðausturhluta eyjanna og er ástandið verst í Klaksvíkar kommuna, Eysturkommuna og Fuglafjarðar kommuna.
Grunnskóli í Klaksvík, sem er næst stærsti bær eyjanna, verður að draga úr kennslu næstu vikuna. Aðeins fjórir yngstu árgangarnir mega mæta í skólann, aðrir fá fjarkennslu.
Menntaskóla hefur verið lokað og fjarkennsla tekin upp.
Yfirvöld hvetja einnig til þess að dregið verði úr frístundaiðkun barna og unglinga og samkomu, þar sem börn frá öllu landinu áttu að koma saman, verður frestað.
Lars Fodgaard Møller, landlæknir, segir að smitin hafi aðallega breiðst út hjá börnum og unglingum. Mörg smit hafi komið upp í tengslum við stóra samkomu þar sem ungmenni frá öllu landinu komu saman.
Þann 1. september var hætt að krefjast þess að allir þeir sem koma til landsins fari í sýnatöku en það hafði verið gert í rúmlega eitt ár. Eftir að þessu var hætt hefur smitum farið fjölgandi.
Christian Andreassen, þingflokksformaður Folkflokken, skrifaði á Facebook að það eigi að byrja aftur með sýnatöku á landamærunum.
Einn COVID-19 sjúklingur liggur nú á sjúkrahúsi. 70 % Færeyinga hafa lokið bólusetningu og 73% hafa fengið einn skammt, hið minnsta, af bóluefni. Tveir hafa látist af völdum COVID-19 frá upphafi heimsfaraldursins.