fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Pressan

Rússar fara á fjörurnar við Grænlendinga – Vilja samstarf um fiskveiðar

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 25. október 2021 17:00

Frá Grænlandi. Mynd tengist frétt ekki. Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörg ríki hafa áhuga á Grænlandi þessa dagana vegna legu landsins og hinna auðugu náttúruauðlinda. Skemmst er að minnast þess að Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseti, vildi gjarnan kaupa þessa stærstu eyju heims. Því tóku bæði Danir og Grænlendingar fálega. En Rússar hafa einnig áhuga á Grænlandi og hafa sýnt mikinn áhuga á auknu samstarfi ríkjanna hvað varðar náttúruauðlindir, hráefni og menningarsamstarf.

Sermitsiaq skýrir frá þessu. Fram kemur að hægt sé að lesa um hugmyndir Rússa um samstarf í greinargerð um utanríkismál sem verður lögð fyrir grænlenska þingið, Inatsisartut, þann 28. október næstkomandi.

Vladimir Barbin, sendiherra Rússlands í Danmörku, staðfesti þennan vilja rússneskra yfirvalda í samtali við Sermitsiaq. „Rússland vill gjarnan nánara samband við Grænland. Við eigum svo margt sameiginlegt á Norðurheimskautasvæðinu að allir aðilar geta notið góðs af samvinnu því við höfum svo margt að læra af hver öðrum,“ sagði hann.

Hann sagði að í huga Rússa snúist þetta um að nýta auðlindirnar sem best, sérstaklega hvað varðar fiskveiðar.

Eins og áður sagði þá hafa Bandaríkin hug á að styrkja stöðu sína og auka áhrif sín á Grænlandi og Kína og ESB vilja einnig styrkja stöðu sína á svæðinu. ESB tilkynnti nýlega að sambandið opni skrifstofu í Nuuk en ekki var skýrt frá því hvenær hún verður opnuð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Elon Musk reynir að múta kjósendum og kvartar undan gagnrýni í sinn garð – „Hver gleðst yfir svona?“

Elon Musk reynir að múta kjósendum og kvartar undan gagnrýni í sinn garð – „Hver gleðst yfir svona?“
Pressan
Í gær

Telja að lík Émile litla hafi verið geymt í frosti

Telja að lík Émile litla hafi verið geymt í frosti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún var kölluð Lafði Dauði

Hún var kölluð Lafði Dauði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný gögn frá NASA benda til að við eigum heima í svartholi

Ný gögn frá NASA benda til að við eigum heima í svartholi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakamál: Brúðkaupsafmælið breyttist í martröð

Sakamál: Brúðkaupsafmælið breyttist í martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á að búa um rúmið á hverjum morgni?

Á að búa um rúmið á hverjum morgni?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Mæðgur ákærðar – Létu barn bera rafmagnsól ætlaða hundum

Mæðgur ákærðar – Létu barn bera rafmagnsól ætlaða hundum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tekist á um hár Ásu og dóttur hennar fyrir dómstólum og skilnaðurinn næstum frágenginn – „Það er kominn tími til að halda áfram með lífið“

Tekist á um hár Ásu og dóttur hennar fyrir dómstólum og skilnaðurinn næstum frágenginn – „Það er kominn tími til að halda áfram með lífið“