„Heimsbyggðin þekkti hann sem Gunther (sjöunda „Vininn“) úr sjónvarpsþáttunum um Vini en fjölskylda Michael þekkti hann sem leikara, tónlistarmann, talsmann meiri fræðslu um krabbamein og elskaðan eiginmann,“ segir í tilkynningu frá fjölskyldu hans.
Tyler glímdi árum saman við krabbamein í blöðruhálskirtli. Hann kom fram í þættinum „The Today Show“ í sumar og skýrði þá frá því að krabbameinið væri komið á fjórða stig. „Ég greindist með blöðruhálskrabbamein og það hefur dreift sér til beinanna. Það eru að verða komin þrjú ár síðan ég greindist og þetta er á fjórða stigi svo líklega mun þetta verða mér að aldurtila,“ sagði hann þá.
Hann kom fram í nýlegum „Endurfundaþætti Vina“ á HBO en vegna veikinda sinna tók hann þátt í gegnum fjarfundabúnað.