Viðkomandi, Shaynah Dodge, er bloggari sem býr í Minnesota. Hún fylgist náið með máli Brian og Gabby og á mánudaginn birti hún færslu þar sem hún bendir á undarlegt atriði varðandi Brian. „Fyrir þremur vikum deildi ég færslu um Pinterestprófíl Brian Laundrie. Á skjáskoti mínu frá því fyrir þremur vikum sést að hann fylgdi 145 manns. Í gærkvöldi kíkti ég á prófílinn hans og tók eftir að nú fylgir hann 146 manns. Er það ekki undarlegt?“
Spyr hún og bætir við: „Auðvitað fjölgar fylgjendum hans í takt við að fólk hópast á síðuna hans en hvernig stendur á því að þeim fjölgar sem hann fylgir?“
Hún segist vera viss um að umræddur Pinterestprófíll tilheyri Brian því hann hafi deilt efni þar með Gabby og móður sinni.