Blaðið birti í gær svar drottningarinnar við tillögu þess um að hún yrði kjörinn öldungur ársins en meðal fyrri sigurvegara eru John Major, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Olivia de Havilland, leikkona, og listamaðurinn David Hockney.
„Hennar hátign er sannfærð um að maður sé eins gamall og manni finnst maður vera. Af þeim sökum telur drottningin ekki að hún uppfylli nauðsynleg skilyrði fyrir að geta veitt verðlaununum viðtöku og vonast til að þið finnið verðugri vinningshafa,“ segir í bréfi sem ritari drottningarinnar sendi blaðinu.
Eiginmaður Elísabetar, Philip prins, lést fyrr á árinu 99 ára að aldri. Sjálf er hún orðin 95 ára en lætur engan bilbug á sér finna og sinnir embættisskyldum sínum af krafti.
Titillinn „Oldie of the Year“ er árlega veittur öldruðu fólki sem þykir hafa skarað fram úr og lagt mikið af mörkum opinberlega. Philip prins fékk þennan titil 2011 þegar hann var níræður.
Tímaritið The Oldie hóf göngu sína 1992 en það er gamansamt mánaðarrit ætlað eldra fólki. Það fjallar ekki um hefðbundin málefni eldra fólks heldur er því ætlað að vera mótsvar við öðrum fjölmiðlum sem eru „helteknir af æsku og frægu fólki“ eins og segir á heimasíðu tímaritsins.
Elísabet hefur verið drottning síðan 1992 og getur því fagnað 70 ára valdaafmæli í febrúar á næsta ári.