fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Pressan

Myrti eiginmann sinn til 25 ára – „Ég reyndi að stinga hann í hjartað en hann var ekki með hjarta“

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 18. október 2021 05:55

David og Penelope Jackson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég reyndi að stinga hann í hjartað en hann var ekki með hjarta.“ Þetta sagði Penelope Jackson, 66 ára frá bænum Berrow á Englandi, eftir að hún drap eiginmann sinn.

Hún stakk eiginmann sinn, hinn 78 ára David Jackson, tvisvar í brjóstið með eldhúshníf í febrúar síðastliðnum. David tókst við illan leik að hringja í neyðarlínuna en Penelope tók símann af honum og sagði ísköld við neyðarvörðinn: „Ég drap manninn minn eða reyndi það af því að ég hef fengið nóg.“

Neyðarvörðurinn heyrði því næst David öskra þegar Penelope stakk hann í þriðja sinn. „Hvar er maðurinn þinn núna?“ spurði hann Penelope sem svaraði: „Hann er í eldhúsinu, þar sem honum, með smá heppni, blæðir út,“ sagði hún.

Málið var tekið fyrir dóm í Bristol í síðustu viku og að vonum hafa margir breskir fjölmiðlar fjallað um það, þeirra á meðal The Times.

Símtalið til neyðarlínunnar var spilað fyrir dómi og leikur enginn vafi á að um morð af yfirlögðu ráði var að ræða. Þegar neyðarvörðurinn bað Penelope að ná í klút og hjálpa David við að stöðva blæðinguna neitaði hún og sagði: „Ég veit hvað ég gerði. Ég veit að þú vilt að ég hjálpi honum en það vil ég því miður ekki. Ég hef fengið nóg. Kannski fer ég og sting hann í bakið.“

„Ég er alveg sammála um að þetta er hræðileg ákvörðun en þetta er eina leiðin út úr þessu fyrir mig. Ég enda í fangelsi en það er betra en líf mitt núna,“ sagði hún einnig.

Út á við virtust hjónin hamingjusöm og vinir og ættingjar segja að samband þeirra hafi virst eðlilegt. En eitthvað mikið virðist hafa verið að sem þau leyndu fyrir öðrum. Ekki er vitað hvað það var við David sem gerði líf Penelope að martröð eins og hún lýsir en sumir breskir fjölmiðlar hafa skrifað að hann hafi glímt við margvísleg heilsufarsvandamál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 6 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 1 viku

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 1 viku

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin