New York Times skýrir frá þessu. Fram kemur að upp hafi komist um svik þeirra félaga og hafi Staveley, sem er 53 ára, játað svikin en þeir félagar höfðu 540.000 dollara upp úr krafsinu. Hann var settur í stofufangelsi eftir að hafa játað svikin. En hann var ekki áfjáður í að mæta fyrir dómara og hljóta dóm fyrir brotið svo hann tók staðsetningarbúnaðinn af fæti sínum og setti eigin dauða á svið.
Hann skildi eftir nokkur stutt bréf þar sem hann sagðist ætla að taka eigið líf. Eitt þeirra var til 81 árs gamallar móður hans. Bréfið skildi hann eftir hjá henni rétt áður en hann ók að heiman.
Leið hans lá um nokkur ríki og notaðist hann við fölsuð skilríki og stolin skráningarnúmer á bíl sinn.
Lögregluna fór að gruna að ekki væri allt með felldu hvað varðaði „sjálfsvíg“ Staveley og því var umfangsmikil rannsókn sett af stað og leit að honum. Hann fannst síðan í júlí á síðasta ári í Alpharetta í Georgíu, rúmlega 1.600 kílómetra frá heimili hans í Massachusetts þar sem hann átti að vera í stofufangelsi.
Þetta varð til þess að Staveley slapp ekki við dóminn og fékk þyngri refsingu fyrir að stinga af úr stofufangelsi og mæta ekki fyrir dóm. Hann var dæmdur í 56 mánaða fangelsi.
Hann er svo sem ekki óvanur réttarvörslukerfinu því sakaskrá hans er löng og hann hefur meðal annars hlotið dóm fyrir fjársvik.