Lögreglunni var strax tilkynnt um þetta og leiddi rannsókn hennar í ljós að barnið, sem var drengur, hefði líklegast látist daginn áður.
Lögreglan gaf drengnum nafnið Andrew John Doe. Hann var jarðsettur í Sioux Falls og fylgdu 50 manns honum til grafar. Kista hans var fyllt með böngsum. Á þessum tíma hafði lögreglan engan grunaðan um morðið og málið féll eiginlega í gleymsku.
En það var tekið aftur til rannsóknar 2009 eftir að miklar framfarir höfðu átt sér stað í DNA-rannsóknum. Út frá þeim niðurstöðum röktu lögreglumenn slóð að húsi í Sioux Falls. Þar voru sýni tekin og sýndu niðurstöður þeirra að kona, sem bjó í húsinu, gæti verið móðir Andrew. En það var ekki fyrr en 2019 sem lögreglan var þess fullviss að konan væri móðir hans og var hún þá handtekin.
New York Times segir að fyrir dómi hafi konan sagt að hún hafi verið „ung og heimsk“ 1981. Hún leyndi því fyrir öllum að hún væri barnshafandi og ól drenginn alein heima í íbúð sinni. Hún sagðist hafa verið mjög niðurdregin og hrædd eftir þetta allt saman og þetta hafi alltaf komið upp í huga hennar þegar hún átti leið framhjá kornakrinum.
Hún samdi við saksóknara um að játa sök fyrir manndráp. Refsing hennar verður ákveðin 2. desember næstkomandi. Á konan allt að lífstíðarfangelsi yfir höfði sér.