Hún vaknaði upp við vondan draum þegar steinn kom í gegnum þakið á húsi hennar og lenti í rúminu hennar, rétt við hlið hennar. Mikil mildi má teljast að hún hafi ekki orðið fyrir steininum en grófkorna sandur og fleira sullaðist á andlit hennar og hundi hennar brá mjög.
Hún hringdi strax í lögregluna sem grunaði í fyrstu að steinninn væri frá byggingasvæði í nágrenninu en þar höfðu engar sprengingar verið að sögn starfsmanna en þeir sögðust hafa séð sprengingu hátt á himni. Þá varð fljótlega ljóst að um loftstein var að ræða. Canadian Press skýrir frá þessu.
Þetta gerðist þann 3. október síðastliðinn. Hamilton var steinsofandi þegar hundurinn hennar fór að gelta af miklum móð um leið og steinninn lenti í rúminu hennar.
„Ég hef aldrei verið svona hrædd á lífsleiðinni. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera svo ég hringdi í neyðarlínuna og á meðan ég var að ræða við neyðarvörðinn sneri ég koddanum mínum við og sá að steinn hafði lent á milli koddanna,“ sagði hún.
Loftsteinahríð hafði skollið á himinhvolfinu yfir vesturhluta Kanada þessa nótt og var um brot úr einum loftsteini að ræða sem endaði í rúmi Hamilton.
Hún segist ætla að eiga steininn og sé mjög fegin að hún hafi ekki slasast. „Ég var í miklu áfalli og sat bara í nokkrar klukkustundir og skalf. Líkurnar á að svona gerist eru svo litlar svo ég er mjög þakklát fyrir að vera á lífi,“ sagði hún.