Clinton var lagður inn á sjúkrahús á þriðjudaginn en það var ekki skýrt frá innlögninni fyrr en í nótt að íslenskum tíma.
Angel Urena, talsmaður Clinton, sagði á Twitter að Clinton hafi verið lagður inn á UCI Medical Center en væri ekki með COVID-19. „Hann fær viðeigandi meðferð, er í góðu skapi og ótrúlegar þakklátur læknum, hjúkrunarfræðingum og starfsfólkinu sem veitir honum frábæra umönnun,“ skrifaði hann einnig.
Í yfirlýsingu frá Alpesh Amin og Lisa Bardack, læknunum sem annast Clinton, segir að hann hafi verið lagður inn á sjúkrahús svo hægt sé að fylgjast náið með honum og gefa honum sýklalyf og vökva. „Eftir tveggja daga meðferð er fjöldi hvítra blóðfruma á niðurleið og hann bregst vel við sýklalyfjum. Við vonumst til að hann geti farið heim fljótlega,“ segir í yfirlýsingu þeirra.
CNN segir að Clinton liggi á gjörgæsludeild en ástæðan fyrir því sé aðallega sú að með því njóti hann meira næðis frá augum annarra. Einnig segir miðillinn að veikindi hans tengist ekki fyrri hjartavandamálum hans.
Clinton, sem er Demókrati, var forseti frá 1993 til 2001.