Aftonbladet segir að maðurinn hafi verið skotinn mörgum skotum og sé hann í lífshættu.
Nokkrum mínútum eftir að tilkynnt var um skothvellina sprakk sprengja í Bruksgata í miðborginni. Töluvert eignatjón varð á byggingunni sem sprengjunni hafði verið komið fyrir við en enginn slasaðist.
Lögreglan veit ekki hvort tengsl eru á milli málanna en hefur unnið að rannsókn þeirra í alla nótt.