Lík Gabby fannst þann 19. september í Wyoming. Eftir að Brian sneri aftur heim til Flórída í byrjun september dvaldi hann hjá foreldrum sínum eða allt þar til hann lét sig hverfa. Foreldrar hans sögðu lögreglunni að hann hefði farið frá þeim þann 14. september en nú hafa þau breytt þeim framburði sínum. Þetta sagði Steve Bertolino, lögmaður þeirra, við CNN.
Frá því að Brian lét sig hverfa hefur alríkislögreglan FBI leitað að honum og hefur hún notið aðstoðar staðarlögreglunnar við leitina. En það er nánast eins og Brian sé horfinu undir yfirborð jarðarinnar.
Leitin hefur aðallega beinst að Carlton Reserve sem er stórt óbyggt svæði nærri heimili foreldra Brian í North Port. Josh Taylor, talsmaður lögreglunnar, sagði að ekkert markvert hafi fundist þar og telji lögreglan nú helmingslíkur á að Brian sé á lífi.
Bertolino sagði CNN að foreldrar Brian hafi nú skýrt lögreglunni frá því að hann hafi farið að heiman þann 12. september og hóf faðir hans leit að honum aðfaranótt 13. september. Hann fann bíl hans 13. september og flutti hann heim 15. september.
Þegar lögreglan ræddi við foreldra Brian þann 17. september sögðust þau ekki hafa séð hann í þrjá daga og að hann hefði farið í gönguferð um Carlton Reserve þann 14. september.