New York Post skýrir frá þessu. Runyon, sem er 39 ára, var að vinna við byggingu nýrrar verslunar í Davenport. Þetta er langt frá heimili hans og samstarfsmanna hans og því bjuggu þeir saman í húsi í grenndinni. Það var þar sem hann varð mönnunum að bana.
Hann er sagður hafa notað hafnaboltakylfu, hníf og bera hnefana til að gera út af við mennina.
Hann flúði síðan af vettvangi en var handtekinn nokkrum klukkustundum síðar og var þá í blóðugum fötum. Í fyrstu sagði hann að honum hefði verið nauðgað og því liti hann svona út. Hann játaði síðar að hafa myrt mennina.
Grady Judd, lögreglustjóri, segir að enn sé ekki vitað hvað varð þess valdandi að Runyon drap mennina.