Jan Lambertsen, yfirmaður rannsóknardeildar grænlensku lögreglunnar, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að líkhlutarnir væru líklegast af karlmanni. „Við vinnum út frá þeim tveimur líkhlutum sem hafa fundist og getum með nokkuð mikilli vissu sagt að þetta er karlmaður,“ sagði hann. Af siðferðislegum ástæðum gat hann ekki sagt hvaða líkamshlutar þetta eru.
Kennsla hafa ekki verið borin á líkamshlutana og er lögreglan á fullu að reyna að finna út úr af hverjum þeir eru. „Eins og staðan er núna hefur ekki verið tilkynnt um hvarf neins. Það gerir þetta svolítið erfitt. Af þeim sökum vinnum við út frá öllum vinklum. Við spyrjumst fyrir bæði innanlands og utan, því þetta getur líka verið einhver sem kom hingað til lands,“ sagði Lambertsen.
Hann sagði að fjölmargir slökkviliðsmenn hafi verið fengnir til aðstoðar við leit í sorpbrennslustöðinni þar sem líkhlutarnir fundust.
Um 4.500 manns búa í Illulissat
Lögreglan hefur beðið fólk að hafa samband ef það sá eitthvað grunsamlegt í bænum frá mánudeginum 27. september til laugardagsins 2. október en talið er að morðið hafi verið framið á þeim tíma. Sermitsiaq skýrir frá þessu.
Hér fyrir neðan er hægt að lesa umfjöllun DV um málið frá því á mánudag.
Dularfullt mál skekur Grænland – Beðið um aðstoð frá Danmörku