Samkvæmt því sem segir í umfjöllun New York Post þá gengur þetta þannig fyrir sig að getnaðarlimurinn er settur inn í leggöngin eins og um hefðbundnar samfarir sé að ræða. En parið má ekki hreyfa sig neitt og þarf því að fá einhvern til að hoppa í rúminu til að mynda bylgjukenndar hreyfingar á rúminu og núning án þess að parið hreyfi sig sjálft.
Eins og fyrr sagði er þetta kallað „soaking“ en er einnig kallað „jump humping“ og er þetta að sögn vinsælt umfjöllunarefni á TikTok þessa daga þar sem fólk getur séð hvernig þetta fer fram.
Mormónar mega ekki stunda kynlíf fyrir hjónaband og því sjá ungir mormónar sér leik á borði með „hoppríðingum“ þar sem þeir geta stundað kynlíf án þess að stunda kynlíf! Svolítið ruglingslegt en þar sem þeir telja sig ekki missa mey- eða sveindóminn með þessari aðferð, í augum guðs eða kirkjunnar að minnsta kosti, þá telja þeir sig geta notað þessa aðferð.
Þetta virðist nú eiginlega vera svolítið ólíklegt en er samt sem áður ansi útbreitt að sögn.