Couzens nam Everard á brott, nauðgaði henni, kyrkti og brenndi lík hennar og faldi síðan. Everard var ein á heimleið að kvöldi til þegar Couzens gaf sig að henni og framvísaði lögregluskilríkjum sínum og „handtók“ hana og flutti á brott í bíl sínum.
Couzens, sem er 48 ára, er nú til rannsóknar vegna máls sem kom upp á veitingastað McDonald‘s í Swanley í Kent fyrir sex árum en þar sást bifreið hans nærri vettvangi. Um kynferðisbrotamál er að ræða. Lögreglunni var tilkynnt að bifreið hans hefði verið nærri vettvangi en samt sem áður var ekki rannsakað hvort hann tengdist málinu. Sky News skýrir frá þessu. Nick Ephgrave, varalögreglustjóri Lundúnalögreglunnar, skýrði frá þessu í gær þegar tilkynnt var að Couzens hefði verið dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morðið á Everard.
Ephgrave sagði að bíll, sem tengdist Couzens, hafi einnig sést nærri vettvangi annars afbrots í Kent 2015. Þegar hann gekk til liðs við lögregluna 2018 voru þessar tilkynningar ekki skoðaðar. Hann sagði að eftirlitsnefnd um störf lögreglunnar hafi verið tilkynnt um þetta. Eftirlitsnefndin er nú að rannsaka mál fimm annarra lögreglumanna sem eru grunaðir um að hafa sent skilaboð til Couzens sem innihéldu kvenhatur, kynþáttaníð og níð í garð samkynhneigðra. Var samskiptaappið WhatsApp notað í samskiptum þeirra.