Þetta gerðist um klukkan 20.30 og á myndbandsupptökum má sjá skrýtinn hlut í loftinu og í sjónum. Á upptöku sem Misitina Sape gerði heyrist hún segja: „Það er eitthvað í loftinu. Hvað er þetta?“ Hawaii News Now skýrir frá þessu.
Önnur kona, Moriah, sagði í samtali við Hawaii News Now að hún hafi litið upp og brugðið við það sem hún sá. Hún hafi hringt í eiginmann sinn og fleiri sem komu einnig og sáu það sem hún sá. „Ég veit ekki hvað þetta var . . . Þetta fór mjög hratt,“ sagði hún. Hún sagði einnig að hluturinn hafi verið alveg hljóðlaus og „stærri en símastaur“.
Fulltrúar flugmálayfirvalda segja að engin flugslys hafi orðið á svæðinu á þessum tíma. En fjölmörg vitni sáu stóran bláan hlut nánast falla af himninum og niður í sjóinn.
Eftir að lögreglumenn komu á vettvang sá Moriah annað ljós, hvítt, sem kom úr sömu átt og bláa ljósið.