Trump Avenue er róleg gata með múrsteinshúsum, tvöföldum bílskúrum og börnum sem leika sér í innkeyrslunum. Bonnie Bowering flutti þangað 2008. „Þegar ég sagði fólki áður að ég byggi á Trump Avenue bætti ég oft við: „Já, það er The Donald.“ Þá brosti fólk til mín eða sagðist samhryggjast mér. Eitthvað í þá veru,“ sagði hún.
En nú vilja margir íbúar í götunni að nafni hennar verði breytt og telja að Trump eigi ekki þann heiður skilinn að gata í höfuðborg Kanada sé nefnd eftir honum. Að minnsta kosti helmingur íbúanna þarf að samþykkja ósk um nafnabreytingu áður en ferlið verður sett í gang og þá tekur við margra mánaða ferli.