Forsvarsmenn ýmissa samtaka óttast að þetta muni í raun gera þeim ókleift að starfa í Tyrklandi. Nýlega var formaður tyrknesku deildar Amnesty International dæmdur í sex ára fangelsi fyrir óljósar sakir.
Ekki er langt síðan Can Dündar, fyrrum aðalritstjóri Cumhuriet, sem er dagblað stjórnarandstöðunnar, var dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir hryðjuverkastarfsemi. Hann var fundinn sekur um að hafa skýrt frá hernaðarleyndarmálum í dagblaðinu. Hann var dæmdur að sér fjarstöddum en hann hefur verið í útlegð í Berlín í nokkur ár. Á Twitter sagði Dündar að nýju lögin séu enn einn liðurinn í fyrirætlunum Erdogan um að hrifsa öll völd til sín og tryggja að hann sé einráður í landinu.
Samkvæmt nýju lögunum fær innanríkisráðuneytið heimild til að setja eigið fólk í stjórnir allra samtaka sem starfa í Tyrklandi. Þannig geta yfirvöld lokað fyrir ákveðna starfsemi og strangt eftirlit verður með starfseminni og samtökin munu eiga erfitt með að afla sér fjár.
Það er orðið staðlað orðalag hjá tyrkneskum yfirvöldum að vísa til hættunnar á hryðjuverkum í tengslum við þær aðgerðir sem gripið er til í landinu til að styrkja stöðu og tök Erdogan sem er í raun einræðisherra í landinu. Í ræðum sínum veitist hann reglulega að „hryðjuverkamönnum“ og á þá oftast við þá sem hann telur hafa staðið á bak við valdaránstilraun í landinu 2016.