Það var á föstudag í síðustu viku sem parið var staðið að verki í biðskýli strætisvagna í borginni. Það var leigubifreiðastjóri sem sá til þeirra og tók kynlífið upp á myndband. Á upptökunni sést konan sitjandi á bekk en karlinn standandi fyrir framan hana með hendur á öxlum hennar. Maðurinn sést líta í kringum sig og sá hann leigubifreiðastjórann sem var að taka kynlífið upp en það fékk parið ekki til að stoppa. The Sun skýrir frá þessu.
Eftir að lögreglan hafði séð upptökuna fór hún að rannsaka málið og hafði upp á parinu en upptökur úr eftirlitsmyndavélum á svæðinu komu þar að miklu gagni. Parið hefur verið úrskurðað í gæsluvarðhald og á allt að tveggja ára og átta mánaða fangelsi yfir höfði sér ef þau verða fundin sek.