Þetta gerðist í gær. Lögreglan var kölluð á vettvang og sagði maðurinn henni að hann hafi verið svo hræddur við að fljúga vegna kórónuveirunnar að hann hafi haldið sig á flugvellinum. Hann kom sér því fyrir í hluta flugstöðvarinnar sem fólk þarf sérstaka aðgangsheimild að.
Hann var handtekinn í gær og kærður fyrir þjófnað og innbrot. Fyrir dómi sagði saksóknari að maðurinn hafi komið á flugvöllinn 19. október. Hann virðist hafa haldið sig á svæði, þar sem þarf sérstaka aðgangsheimild að, síðan. Dómarinn, Susana Ortiz, var frekar vantrúuð á þessa lýsingu saksóknarans og spurði hvort hún skildi hann rétt að maðurinn hafi virkilega haldið sig á sérstöku öryggissvæði frá 19. október til 16. janúar án þess að upp um hann kæmist.
Það voru tveir starfsmenn United Airlines sem höfðu afskipti af manninum, sem er 36 ára, og báðu hann um að framvísa skilríkjum. Hann framvísaði þá aðgangskorti sem var tilkynnt týnt þann 26. október. Það tilheyrir yfirmanni á vellinum.