Samkvæmt frétt The Guardian þá segja ráðherrar að notkun erfðabreytinga í matvælaframleiðslu muni hafa mikinn ávinning í för með sér fyrir bændur og neytendur. Matvæli verði hollari, þetta hafi bætt áhrif á umhverfið og velferð dýra.
En mörg umhverfisverndarsamtök og dýraverndunarsamtök hafa áhyggjur af þessum fyrirætlunum og telja að þetta geti dregið úr dýravelferð, til dæmis ef tæknin verður notuð til að hraða vexti dýra á kostnað heilbrigðis þeirra.
George Eustice, ráðherra umhverfismála, matvælamála og dreifbýlismála, segir að með erfðabreytingum sé hægt að nýta þá erfðafræðilegu kosti sem móðir náttúra hefur skapað til að takast á við áskoranir samtímans. Þannig verði hægt að rækta jarðargróður sem hefur betri eiginleika, draga úr kostnaði bænda og áhrifum á umhverfið og til að takast á við loftslagsbreytingarnar.
Með erfðabreytingum er hægt að þróa jarðargróður sem þarf minna af skordýraeitri á eða áburð. Einnig væri hægt að breyta erfðamengi dýra þannig að þau séu ónæm fyrir ákveðnum sjúkdómum.