CNN skýrir frá þessu. Fram kemur að varnarmálaráðuneytið og leyniþjónustur landsins eigi að birta skýrslu, sem engin leynd má hvíla yfir, um allt það er varðar fljúgandi furðuhluti og annað er gæti hugsanlega tengst vitsmunaverum frá öðrum plánetum. Þó er kveðið á um að það megi fjalla um sérstaklega viðkvæmt efni í leynilegum kafla í skýrslunni og verður sá kafli ekki aðgengilegur almenningi.
Áhugafólk um fljúgandi furðuhluti getur því farið að hlakka til að lesa nákvæmar greiningar frá hernum og alríkislögreglunni FBI um mál þar sem fljúgandi furðuhlutir koma við sögu. Einnig verður sérstakur embættismaður tilnefndur til að sjá um ferlið í kringum skýrslugerðina og birtingu hennar. í skýrslunni á einnig að koma fram hvort ógn stafi af fljúgandi furðuhlutum og hvort hugsanlegt sé að óvinaríki Bandaríkjanna standi á bak við fljúgandi furðuhluti.
Í apríl á síðasta ári birti varnarmálaráðuneytið þrjú myndbönd frá 2004 og 2005 sem sýna fljúgandi furðuhluti. Á stuttum myndskeiðunum, sem voru tekin upp með innrauðu ljósi, sjást hlutir þjóta mjög hratt um loftið, hraðar en mögulegt er miðað við þá tækni sem við búum yfir í dag. Einnig heyrast viðbrögð flugmanna orustuþotnanna, sem tóku myndböndin upp, við þessu.
Í ágúst ákvað varnarmálaráðuneytið að stofna sérstakt teymi sem á að rannsaka myndböndin þrjú. Niðurstaða þeirrar rannsóknar verður væntanlega hluti af skýrslunni sem verður birt innan sex mánaða.
Þingmenn og varnarmálaráðuneytið hafa lengi haft áhyggjur af fljúgandi furðuhlutum þar sem ekki hefur tekist að finna skýringar á hvað er um að ræða. Slíkir hlutir hafa til dæmis flogið nærri herstöðvum. Af þessum sökum ákvað leyniþjónustunefnd öldungadeildarinnar að krefjast opinberrar skýrslu um málið.