CNN og HuffPost skýra frá þessu. Báðir miðlarnir hafa fengið þær upplýsingar frá þingmönnum Demókrata að lögreglan, sem sér um gæslu þingsins, hafi kynnt þeim þetta. „Þeir (lögreglan, innskt. Blaðamanns) segja að um 4.000 vopnaðir „föðurlandsvinir“ ætli að umkringja þinghúsið og koma í veg fyrir að Demókratar komist inn,“ sagði Conor Lamp, Demókrati, í „New Day“ þætti CNN.
„Þeir eru með opinberar leiðbeiningar um hvernig þeir geta tekið þátt, hvenær á að skjóta og hvenær á ekki að skjóta. Þetta er skipulagður hópur með áætlun,“ sagði hann einnig.
HuffPost segir að forysta þingsins hafi kynnt Demókrötum þessar skelfilegu fyrirætlanir öfgasinnana í gær. Segir miðillinn að lögreglan fylgist náið með þremur hópum sem eru taldir líklegir til að láta til skara skríða.
Fyrsta árásin er sögð tengjast mótmælum sem nefnast „stærstu vopnuðu mótmæli sögunnar í Bandaríkjunum“. Önnur ógn er tengd við mótmæli sem er ætlað að heiðra Ashli Babbitt sem var drepin af lögreglunni þegar hún tók þátt í árásinni á þinghúsið þann 6. janúar.
HuffPost segir að þriðja og skelfilegasta áætlunin sé að öfgasinnarnir hyggist umkringja þinghúsið, Hvíta húsið og Hæstarétt. Þeir hyggjast meina Demókrötum aðgang að þinghúsinu og jafnvel myrða þá þannig að Repúblikanar geti áfram verið við stjórnvölinn. HuffPost hefur þetta eftir þremur þingmönnum. Þessi ógn beinist einnig að þingmönnum Repúblikana sem ekki hafa stutt tilraunir Trump til að hnekkja niðurstöðum forsetakosninganna.
HuffPost segir að þeir þingmenn sem rætt hefur verið við séu „mjög áhyggjufullir“ vegna málsins. Þingmenn hafa verið beðnir um að skýra ekki frá nákvæmum upplýsingum um þessa ógn því það geti hjálpað öfgasinnunum við skipulagningu ódæðisverka. Af þessum sökum hefur HuffPost ekki birt upplýsingar um hverjir standa á bak við skipulagningu ódæðisverkanna eða hvenær á að fremja þau.