Ríkisfréttastofan KCNA skýrði frá þessu að sögn AFP. Í frétt ríkisfréttastofunnar, sem er eina fréttastofa landsins, kemur fram að allir þingfulltrúar hafi greitt tillögunni atkvæði sitt með lófaklappi.
Ahn Chan-il, landflótta Norður-Kóreumaður, sem vinnur að rannsóknum á vegum World Institute for North Korea Studies i Suður-Kóreu, telur að breytingunni sé ætlað að styrja völd Kim Jong-un, sem er einræðisherra í landinu, á erfiðum tímum efnahagslega.
„Kim vildi skapa sjálfum sér og valdatíma sínum nýja ímynd, öðruvísi en ímynd föður hans, með því að vera „formaður“ en það virðist sem hann þurfi að leggja áherslu á tengsl sín við föður sinn til að styrkja sig í sessi sem leiðtogi á þessum erfiðu tímum,“ hefur AFP eftir Ahn Chan-il.
Fyrir helgi viðurkenndi Kim Jong-un fyrir þingheimi að fimm ára efnahagsáætlun landsins, sem var samþykkt á síðasta flokksþingi verkamannaflokksins, hafi ekki gengið eftir. „Næstum allt hefur brugðist í henni,“ sagði hann í opnunarræðu sinni á þriðjudaginn.
Kórónuveirufaraldurinn hefur ekki bætt ástandið í þessu harðlokaða einræðisríki. Í janúar var landamærum landsins lokað til að vernda það fyrir kórónuveirunni sem var þá farin á kreik í Kína.