Lík hennar fannst síðar í almenningsgarði ekki fjarri heimili hennar. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bretlandi og þykir sýna hversu hættulegt það getur verið fyrir konur að vera einar á ferð í stórborginni.
Á föstudaginn komu rúmlega 500 manns saman til að minnast hennar. Flestir þeirra sem mættu voru konur sem þekktu Nessa ekki neitt en vildu vekja athygli á örlögum hennar og þeirri dapurlegu staðreynd að þau eru ekkert einsdæmi.
„Lögreglan sagði að hún hefði yfirgefið heimili sitt til að hitta vin sinn á pöbb sem er í fimm mínútna göngufjarlægð frá heimili hennar. Við förum oft á þennan sama pöbb. Manni finnst að þetta hefði alveg eins getað komið fyrir mann sjálfan. Þetta getur gerst alls staðar,“ sagði Aliya Isaeva í samtali við CNN en hún býr í sama hverfi og Nessa.
Lögreglan telur að Nessa hafi verið myrt föstudaginn 17. september þegar hún gekk í gegnum almenningsgarðinn. Lík hennar fannst daginn eftir nærri félagsheimili ekki fjarri almenningsgarðinum.
Einn hefur verið handtekinn vegna morðsins. Það gerðist eftir að Lundúnalögreglan birti tvær myndur úr eftirlitsmyndavélum. Þær voru teknar nærri morðvettvanginum. Önnur er af karlmanni og hin af silfurlituðum bíl.
„Það er eins og við séum föst í martröð sem við getum ekki vaknað upp af. Við misstum systur okkar, foreldrar okkar misstu dóttur sína og dætur mínar misstu frábæra, ástríka og umhyggjusama frænku,“ sagði Jebina Yasmin Islam, systir Nessa, í samtali við CNN.
Eins og fyrr sagði þá er þetta mál ekkert einsdæmi. Í mars var Sarah Everard, 33 ára, myrt í suðurhluta Lundúna. Hún hvarf á heimleið frá heimili vinar síns. Lík hennar fannst í skóglendi í um 80 km fjarlægð. Síðar var 48 ára lögreglumaður, Wayne Couzens, handtekinn vegna morðsins. Hann hefur játað að hafa numið Everard á brott, nauðgað henni og myrt. Málið vakti mikla reiði meðal breskra kvenna sem óttast margar að sömu örlög geti beðið þeirra. Margar skýrðu í framhaldi af þessu frá kynferðislegri áreitni og kynferðisofbeldi sem þær hafa orðið fyrir og nýttu samfélagsmiðla til þess.