Los Angeles Times segir að lögreglan hafi farið að heimili mæðgnanna á sunnudaginn eftir að ættingi Travis tilkynnti að hann hefði ekki heyrt frá henni um langa hríð. Á heimilinu hittu lögreglumenn dóttur hennar, Carol, og voru svör hennar um hvar móðir hennar væri mjög óljós og loðin.
Húsið var að sögn lögreglunnar mjög skítugt og drasl út um allt. Í bílskúrnum fundu lögreglumenn stóran frysti og í honum var lík Travis gegnfrosið. Það var alveg heilt. Ekki liggur fyrir hvort hún lést af eðlilegum orsökum eða var myrt.
Hún lét af störfum hjá morðdeild lögreglunnar í Los Angelse fyrir rúmlega 30 árum og fór á eftirlaun og lét lítið fyrir sér fara eftir það. Hún var eftirsóttur ráðgjafi við gerð sakamálaþátta fyrir sjónvarp og vann við fjölda slíkra.
Carol vildi ekki ræða mikið við lögregluna sem segir að hún sé ekki grunuð um neitt saknæmt eins og staðan er núna en sé samt sem áður áhugaverð fyrir rannsókn málsins.