NBC News skýrir frá þessu. Fram kemur að í stefnu málsins komi fram að Mary Trump og þrír blaðamenn hjá The New York Times, þau Susanne Craig, David Barstow og Russel Buettner, hafi tekið þátt í „lúmskri áætlun“ og „umfangsmikilli herferð“ til að komast yfir skattskýrslur forsetans fyrrverandi.
Í stefnunni segir að Mary Trump hafi birt skattskýrslurnar í metsölubók sinni „Too Much and Never Enough: How My Family Created the World‘s Most Dangerous Man“ sem var gefin út á síðasta ári en hún fjallar um Donald Trump.
Einnig kemur fram í stefnunni að Mary og blaðamennirnir hafi verið rekin áfram af „persónulegum hefndarþorsta og draumum um að verða fræg og hagnast“ auk þess sem þau hafi viljað „styrkja pólitískan boðskap sinn“.
Mary Trump gefur ekki mikið fyrir lögsókn frænda síns. „Mér finnst hann (Donald Trump, innsk. blaðamanns) vera misheppnaður og hann kastar öllu sem hann getur í vegginn í von um að það sitji fast. Þetta er örvænting. Eins og alltaf hjá Donald Trump þá reynir hann að breyta um umræðuefni,“ segir í yfirlýsingu frá Mary.
The New York Times segir að blaðið muni grípa til varna fyrir dómi en lögsóknin sé ekkert annað en tilraun til að þagga niður í blaðinu.