Víða reyna yfirvöld og fleiri að fá fleiri til að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni og því hefur eflaust einhverjum brugðið í brún við þessa auglýsingu útfararstofunnar enda ekki hægt að lesa annað úr henni en að fólk eigi ekki að láta bólusetja sig til að útfararstofan fái meiri viðskipti.
Í Bandaríkjunum hefur víða verið gripið til aðgerða til að reyna að fá fólk til að láta bólusetja sig, það fær greitt fyrir það, ókeypis mat, miða á íþróttaviðburði og fleira. Aðeins 55% Bandaríkjamanna hafa lokið bólusetningu að sögn CNN.
Fram kemur að auglýsingastofa í Charlotte hafi ákveðið að grípa til eigin aðgerða í málinu og fara óhefðbundnar leiðir við að reyna að fá fólk til að láta bólusetja sig. Hún lét því útbúa sendiferðabílinn með umræddum auglýsingum. Wilmore útfararstofan er ekki til og þegar farið er inn á heimasíðu hennar flyst fólk sjálfkrafa yfir á aðra heimasíðu þar sem eru leiðbeiningar um hvar er hægt að láta bólusetja sig og hvatning þar um.
Á heimasíðunni birtast síðan sprettigluggar með skilaboðum, „Láttu bólusetja þig núna“, og síðan: „Ef ekki, þá hittumst við fljótlega“.
David Oakley, forstjóri BooneOakley auglýsingastofunnar sagði í samtali við CNN að hann hafi talið tíma til kominn að taka hlutina alvarlega, hefðbundnar auglýsingar séu ekki að virka og því hafi verið ákveðið að fara þessa leið til að láta fólki bregða og fá það til að hugsa.