Árásarmaðurinn, sem er 28 ára meðlimur í mafíunni í Napólí, skaut þremur skotum á samfanga sína á sunnudaginn eftir að þeir höfðu rifist. Hann hitti þá ekki að sögn Donato Capece, fangelsisstjóra í Sappe fangelsinu. The Guardian skýrir frá þessu.
Maðurinn hafði fengið leyfi til að yfirgefa klefa sinn til að fara í sturtu. Um leið og dyrnar að klefa hans voru opnaðar dró hann upp skammbyssu og beindi henni að fangaverði og neyddi hann til að afhenda sér lykla að öðrum klefum. Honum tókst þó ekki að opna þá og greip þá til þess ráðs að skjóta í gegnum rimlana.
Því næst notaði hann farsíma, sem hann átti ekki að vera með í fórum sínum, til að hringja í lögmann sinn sem ráðlagði honum að leggja byssuna frá sér og gefast upp. Sappe fangelsið er öryggisfangelsi í um 100 kílómetra fjarlægð frá Róm.
Capece sagði að talið sé að byssunni hafi verið smyglað inn í fangelsið með dróna.
Málið hefur enn einu sinni beint sjónum að slæmum aðstæðum í ítölskum fangelsum sem eru mörg hver yfirfull. Samkvæmt skýrslu Evrópuráðsins frá því á síðasta ári þá eru 120 fangar á hver 100 rými í ítölskum fangelsum. Í Frakklandi eru 115 fangar á hver 100 rými og á Spáni 70,8.