Það tók aðeins eina viku að safna 500.000 undirskriftum en það er sá lágmarksfjöldi undirskrifta sem þarf til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu. Undirskriftasöfnunin fór fram á netinu.
Þeir sem standa að baki hennar segja að þátttakan sýni vel hversu margir vilja breytingar á refsilöggjöfinni hvað varðar hassneyslu og sölu. Í tillögunni felst að refsilaust verður að nota hass og selja það og kaupa sem og rækta.
Emma Bonino, fyrrum utanríkisráðherra og fulltrúi Ítala í Framkvæmdastjórn ESB, sagði að þetta væru ákveðin tímamót, ekki aðeins fyrir þá sem standa að undirskriftasöfnuninni heldur einnig þjóðina alla.
Skipuleggjendur undirskriftasöfnunarinnar hafa allan september til að safna undirskriftum. Eins og áður segist þá náðist markið á aðeins einni viku, síðasta laugardag. Þeir biðja fólk samt um að halda áfram að skrifa undir, bara til að gulltryggja málið.
Helmingur þeirra sem hefur skrifað undir er fólk yngra en 25 ára.
Næsta skref er síðan að hæstiréttur sker úr um hvort öllum formsatriðum hafi verið fullnægt og ef svo er þá verður boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu.