Hópur kínverskra vísindamanna vinnur nú að því að hanna slíkt geimfar en ef þeim tekst ætlunarverk sitt mun það gjörbreyta geimferðum mannkynsins. Geimfar af þessari stærð gæti hjálpað til við rannsóknir á plánetum utan sólkerfisins eða við flutning á fólki og búnaði til Mars.
Danska ríkisútvarpið hefur eftir John Leif Jørgensen, prófessor við DTU Space, að hugmyndir Kínverja séu ekki bara skot út í loftið. „Þetta er mjög gott verkefni því þróunin er í þessa átt. Það lítur út fyrir að þeir ætli strax að hefjast handa við að smíða litla frumgerð og risastór geimför verða örugglega hluti af geimferðaáætlunum framtíðarinnar,“ sagði hann.
„Sumt af því sem við viljum helst geta gert úti í geimnum krefst þess að við finnum út úr því hvernig við getum smíðað og sett saman risastór geimför. Ef Kínverjum tekst þetta mun það veita þeim mikið forskot, skiptir þá engu hvort geimfarið verður „bara“ 700 metrar eða kílómetri, eins og þeir vona,“ sagði Jørgensen.
Hvað varðar notkunarmöguleika svona stórs geimfars þá sagði hann að til dæmis sé hægt að nota það til að flytja enn stærri og betri geimsjónauka út í geim. Með þeim verði hægt að skoða fjarlægar plánetur enn betur og leita að lífi utan sólkerfisins.
Annað verkefni sem svona stór geimför geta annast er að flytja fólk og búnað til Mars þegar við erum tilbúin til að senda fólk til plánetunnar.
Geimfar af þessari stærð verður væntanlega kjarnorkuknúnið og því er mikilvægt að geimfarið sé mjög langt til að geimfararnir þurfi ekki að vera of nærri hreyflunum vegna hættu á geislavirkni.