Maðurinn heitir Moufide Bouchibi og er 41 árs. Hann var framseldur til Frakklands frá Dubai í mars en hann hafði verið eftirlýstur í mörg ár.
Fyrir dómi sagði Mathieu Fohlen, saksóknari, að Bouchibi hafi smyglað „stjarnfræðilegu“ magni af hassi frá Marokkó til Frakklands. Við smyglið voru gríðarlega hraðskreiðir bílar notaðir.
Franska og spænska lögreglan hafa lengi reynt að loka á þessa smyglaðferð en í henni felst að glæpamenn fylla hraðskreiða bíla, yfirleitt þýska, af hassi og aka svo á ofsahraða frá suðurhluta Spánar til Frakklands, yfirleitt að næturlagi.
2011 tókst að stöðva akstur eins slíks bíls og voru 743 kíló af hassi í honum. Bouchibi stóð að baki smyglinu. En aðrir ökumenn sluppu frá lögreglunni að því er segir í skilaboðum frá Bouchibi sem lögreglan komst yfir. Þetta sagði saksóknari fyrir dómi. Bouchibi þvertók fyrir að hafa sent skilaboðin.
Þegar dómurinn var kveðinn upp sagði dómarinn að Bouchibi verið að afplána að minnsta kost tvo þriðju hluta hans áður en hann getur fengið reynslulausn en það verður eftir tæplega 11 ár. Auk fangelsisdómsins þarf hann að greiða 6 milljónir evra í sekt. Bouchibi ætlar að áfrýja dómnum að sögn verjanda hans.