Samkvæmt nýjustu tölum þá greindust að meðaltali rúmlega 36.500 smit á dag í síðustu viku. Það er Deltaafbrigðið sem leikur lausum hala og veldur þessum mikla fjölda smita. Ríkisstjórnin felldi allar sóttvarnaaðgerðir úr gildi í lok júlí og því er lítið sem heldur aftur af útbreiðslunni.
Samkvæmt greiningu greiningarfyrirtækisins Airfinity þá þurfa dagleg smit að verða 50.500 áður en sjúkrahúsin eiga á hættu að yfirfyllast. Telur fyrirtækið að sá fjöldi smita verði orðin staðreynd í nóvember ef þróunin heldur áfram á sama veg og nú.
Ríkisstjórnin hefur hafnað því að grípa til harðra lokana á samfélaginu í tvær vikur en útilokar ekki að grípa til sóttvarnaaðgerða á borð við grímuskyldu og félagsforðunar ef fjöldi smita leggst þungt á heilbrigðiskerfið.
The Independent hefur eftir talsmönnum opinbera heilbrigðiskerfisins, NHS, að þeir hafi áhyggjur af aukningu smita og þá sérstaklega í ljósi þeirra milljóna barna sem hafa nú snúið aftur í skóla að loknu sumarfríi og fullorðinna sem eru komnir aftur til starfa á vinnustöðum sínum.
Rúmlega sjö milljónir Breta hafa greinst með veiruna og 134.000 hafa látist. 89% af fólki eldra en 16 ára hefur fengið einn skammt af bóluefni og 80% tvo skammta.